Fjármáladagurinn 2014 - 4. apríl í Hörpu
Fjármáladagurinn 2014, ráðstefna um fjármál fyrirtækja, verður haldinn í Hörpu 4. apríl nk.
Þema ráðstefnunnar er tækifæri og áskoranir framundan. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar inná http://fjarmaladagurinn.is/ .
Tilgangur dagsins er þríþættur. Í fyrsta lagi er boðið upp á vandaða fyrirlestra og umræður, í öðru lagi samskipti og fundi við þjónustuaðila í gegnum kynningarbása og í þriðja lagi verður þetta vettvangur fyrir fjármálastjóra og annað fjármálafólk að hittast, ræða málin og eiga ánægjulegan dag.
Miðasalan er hafin inná vefsíðu ráðstefnunnar . Einnig er hægt að senda póst á ifs@ifs.is eða hringja og taka frá miða í síma 533-4600. Forsala verður fram á föstudaginn 28.mars.
Skipuleggjendur eru IFS og Háskólinn í Reykjavík. Aðal styrktaraðilar eru Arion banki og Icelandair Group. Aðrir bakhjarlar eru Landsbankinn, Bloomberg, Ernst & Young, Landsvirkjun og Capacent
Fylgið okkur á Twitter: https://twitter.com/Fjarmaladagur
@Fjarmaladagur